Beiðni um aðgang að tilteknum gögnum í tengslum við sölu á hlut ríkisins í Íslandsbankab
Frumkvæðismál (2310219)
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
Nefndarfundir
Dagsetning | Fundur | Bókun |
---|---|---|
18.01.2024 | 27. fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar | Beiðni um aðgang að tilteknum gögnum í tengslum við sölu á hlut ríkisins í Íslandsbankab Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Sigmar Guðmundsson, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir og Þórunn Sveinbjarnardóttir samþykktu að taka til athugunar ákvarðanir og verklag fyrrverandi fjármála- og efnahagsráðherra í tengslum við þau gögn sem óskað var eftir á 7 fundi nefndarinnar, 18. október 2023, sbr. 2. mgr. 8. tölul. 1. mgr. 13. gr. þingskapa. |
18.10.2023 | 7. fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar | Beiðni um aðgang að tilteknum gögnum í tengslum við sölu á hlut ríkisins í Íslandsbankab Nefndin samþykkti, með vísan til 51. gr. þingskapa, tillögu Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur um að óska eftir aðgangi að minnisblöðum, gögnum og öðrum þeim upplýsingum frá forsætisráðuneyti og fjármála- og efnahagsráðuneyti sem varða stöðu Bankasýslu ríkisins sem sjálfstæðrar stofnunar og framkvæmd hæfisreglna stjórnsýsluréttar við undirbúning að áframhaldandi sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka 22. mars 2022 og lagðar voru fyrir ráðherra. |